Græðgi, ekkert annað

Að framlengja höfundarrétt í 70 ár er bara fáránlegt.

Það er ekkert nema græðgi að ætlast til þess að fá áfram borgað fyrir verk 70 árum eftir að það var unnið.

Það er ekki náttúrulögmál að afritun hugverka sé takmörkuð með lögum. Höfundarréttur er samningur milli almennings og höfunda, ætlaður til þess að hvetja til sköpunar með það að lokamarkmiði að sem flest áhugaverð verk verði til og auðgi samfélag og mannlíf. Nauðsynlegur hluti þessa ferlis er að verk fari á endanum úr höfundarrétti og verði frjáls til afnota almennings. Þessi hluti samningsins virðist hafa gleymst, enda gráðugir menn og gráðug útgáfufyrirtæki sem vilja halda áfram að græða á hlutum sem eru löngu orðnir hluti af menningu þjóða.

Samanber liðið sem vill fá borgað fyrir hvern flutning afmælissöngsins...

Þetta er dapurleg frétt.


mbl.is Höfundarréttur laga verður 70 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað um karla?

Varðandi frétt um að 42% kvenna hafi sætt ofbeldi:

Mér hefði þótt gaman að heyra hvert samsvarandi hlutfall er hjá körlum. Hversu margir karlmenn hafa verið beittir ofbeldi? Hver eru kynjahlutföll gerenda? Hvar eru mörkin dregin?

Ég hef verið löðrungaður af reiðum konum - var það ofbeldi? Ég hef haldið reiðri konu það fast að hún fékk marbletti. Var það ofbeldi? Eða sjálfsvörn?

Fréttin gefur í skyn að niðurstöðurnar lýsi vandamáli, en að 42% kvenna hafi einhverntímann lent í ryskingum um ævina getur hvort sem er verið há eða furðulág, allt eftir því við hvað er miðað. Þetta er allt hið forvitnilegasta.

Ég vildi óska að Morgunblaðið léti tengla á nánari upplýsingar fylgja fréttum sínum.


mbl.is 42% kvenna hafa sætt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fésbók, frá snillingunum sem fundu upp "Alnetið"

Facebook er sérnafn. Það er mjög skrítið að Morgunblaðið taki upp á sitt einsdæmi að þýða nafn fyrirtækisins með þessum hætti, það er ekki venjan að það sé gert þegar fjallað er um önnur erlend fyrirtæki.

Eða megum við nú eiga von á fréttum um hugbúnaðarrisann Pínkumjúk og fartölvur frá Eplinu? Mér dettur eins og er ekki í hug nein "sniðug" þýðing á Google, en hvet lesendur, ef einhverjir eru, til að koma með tillögur í athugasemdum. :-P

Kannski er ég bara húmorslaus, en mér finnst þetta frekar asnaleg fréttamennska.

Vefurinn heitir "Facebook"!

Annars þakka ég bara fyrir að tilraunir Morgunblaðsins til að endurnefna Internetið "Alnetið" mistókust hér um árið...


mbl.is Ákærður fyrir kynferðisbrot á Fésbók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og partalistinn.net ... og fleiri.

Þetta er skrítin frétt.

Tilgangurinn virðist bara vera að endurbirta efni frá Reuters, hvort sem það kemur Íslendingum við eða ekki.  Það eru allnokkrir vefir sem sérhæfa sig í svona smáauglýsingum hérlendis - Partalistinn minn er einn þeirra.  Smáauglýsingar moggans annar, og Barnaland, ...

Furðuleg fréttamennska að endurbirta þetta hrátt svona án nokkurrar staðfæringar.  Ojæja!

En grunnskilaboðin - að til séu vefir sem auðvelda fólki að gefa/þiggja/selja/kaupa notaða hluti er ágætis innlegg í kreppuumræðuna svosem.  Prófið Partalistann! :-)


mbl.is Vefsíða býður vörur ókeypis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær mynd

Myndin með þessari frétt er snilld.  Kona og barn í Hong Kong, með grímur fyrir vitunum, hafa augljóslega allt að gera með praktískt og tilfinningalegt jafnræði í Danmörku. :-P

Annars finnst mér ekki fréttnæmt að jafnrétti sé mikið til tilfinningalegt.

Konur og karlar þurfa að bera virðingu fyrir hvort öðru og meta framlag hvors annars; þó það sé nauðsynlegt að við höfum sem jafnasta möguleika er ekki þar með sagt að konur og karlar þurfi alltaf að vera nákvæmlega eins og gera nákvæmlega sömu hluti. Að neyða okkur til þess væri jafn mikil kúgun og felsissvipting og stíf hlutverkaskipting "feðraveldisins".

Aðalmálið er að bæði kynin eigi kost á því að dafna sem manneskjur og njóta virðingar, hver með sínum hætti.


mbl.is Jafnréttið tilfinningalegt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjarmi miðbæjarins

Sjarmi miðbæjarins er, að þar er líf.  Líf á daginn, líf á kvöldin, líf á nóttunni og um helgar.

Þeir sem vilja búa í dauðu hverfi, þar sem ekki er líf, hafa úr nógu að velja.  Þeir sem vilja búa í rólegu hverfi, þar sem það er bara aðeins minna líf, hafa líka úr nógu að velja.

Mér finnst þetta vera helvítins væl: ég á íbúð í miðbænum og ég keypti hana vitandi það að stundum myndi ég heyra partíhávaða og læti.  Ég leit á það sem kost, ekki galla.  Þetta er hluti af sjarma miðbæjarins.

Ef fólk flytur í miðbæinn, vitandi hvernig hann er, og "vex svo upp úr því" að hafa gaman af mannlífinu þá á það að flytja, ekki heimta að miðbærinn lagi sig að þeim.  Það er nóg af öðrum fallegu hverfum í borginni þar sem það er ró og svefnfriður á nóttunni.

Svona breytingar jaðra í mínum huga við skemmdarverk.


mbl.is Hávaðinn óþolandi að sögn íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílar ganga ekki fyrir vatni

... nema mögulega rafbílar knúnir af fallvatnsvirkjunum. :-P

Allt annað er bara plat.

Annars finnst mér kúl að þessi frétt sé tóm og ég sé að geta athugasemd við frétt sem er ekki enn til!  Mér finnst ég standa mig vel sem beturviti núna.


mbl.is Bíll sem gengur fyrir vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið varlega með lykilorðin ykkar!

Einfaldasta skýringin á þessu, er að Einar hafi látið glepjast og gefið upp Gmail notendanafn og lykilorð þegar hann hefðu betur sleppt því. Einnig er hugsanlegt að tölvan hans hafi smitast af vírus sem hafi sent notendanafn og lykilorð til þriðja aðila,...

Fyndið!

Mér finnst myndin sem fylgir fréttinni af Svarthöfða á rölti með prestum ansi góð.

Hlýnun er bara víst ógn

Íslendingar eru fáfróðir kjánar. Auðvitað er hlýnun jarðar ógn fyrir Íslendinga eins og aðra: eitt af helstu áhyggjuefnum þeirra sem spá fyrir um áhrif þessarar hlýnunar eru breytingar á hafstraumum, hækkandi sjávarborð og aukinn veðurofsi. Blöndun heita...

Ísland, best í heimi

Ég elska Ísland og mér fannst frábært að búa þar. Þegar ég er búinn að afreka það sem ég vil afreka í útlandinu, reikna ég fastlega með að koma heim. En grein Paul Valley í The Independant er skelfileg froða . Hann fullyrðir hluti út í loftið algjörlega...

Sorglegt

Mér finnst þessi frétt dapurleg. Hvaðan koma þessi viðhorf? Af hverju finnst fólki "nýbúar" vera "of margir"? Er þetta eitthvað annað en rasismi? Ef á Íslandi væru margir nýbúar atvinnulausir og betlandi, eða á annan hátt til trafala, þá myndi ég skilja...

Fyndið - er þetta satt?

Mér finnst fréttin af unglingum að stöðva umferð mjög fyndin. Ég velti samt fyrir mér hvort það sé virkilega satt að krakkarnir hafi bara verið að fíflast og hafi ekki verið að meina neitt með þessu. Veit einhver betur?

Hungursneyð og bílafóður

Ég er yfirleitt meira í því að tuða um það sem mætti betur fara, og er ekki mikill aðdáandi íslenskra stjórnvalda... en rosalega er ég ánægður að sjá Íslendinga nærri þrefalda framlag sitt til matvælaáætlunar SÞ . Svona á að gera þetta! Það er búið að...

Innanbloggsvísanir

Umræðan hér á blog.is er stærsti kostur vefsins. Það eru nokkrir fítusar sem myndu gera kerfið enn skilvirkara: Þegar maður gerir athugasemd við blogg einhvers, ætti maður að hafa val um að birta athugasemdina jafnframt sem færslu á eigin bloggsíðu....

Mótmælagangan mikla

Ó guð, grey maðurinn að labba ALLA LEIÐ frá Kringlunni niðrí bæ! Þvílík þraut! Hvernig eru þetta mótmæli? Ég hef labbað þessa leið margoft, hún er falleg og skemmtileg. Eru bílafíklar landsins virkilega svo firrtir og úr tengslum við fæturnar á sér, að...

Videntifier stöðvar ekki niðurhal

Videntifier hugbúnaðurinn mun ekki stöðva niðurhal . Hann gæti hinsvegar auðveldað aðilum eins og Youtube að verða við óskum höfundarréttarhafa um að fjarlægja efni sem hefur verið birt í leyfisleysi. Videntifier er mjög öflugt tæki til að hjálpa...

Halló heimur

Þá er ég kominn með blog.is síðu og get tekið þátt í lokuðum bloggheimi MBL. Aðallega býst ég við að þetta sé gagnlegt til að gera athugasemdir við tilteknar fréttir og taka þátt í umræðu hér; það er ekki séns að ég fari að skrifa lengri pistla á vef sem...

Höfundur

Bjarni Rúnar Einarsson
Bjarni Rúnar Einarsson
Beturviti og netverji.

RSS-straumar

Vefir Bjarna

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband